Pistlar

13.04 2008 01:07

Borgarbörn

Leikskóli annast að ósk foreldra uppeldi og menntun barna á leikskólaaldri undir handleiðslu sérmenntaðs fólks. Höfuðmarkmið leikskólaráðs Reykjavíkurborgar er að tryggja börnunum framúrskarandi nám og umönnun í leikskólum.

Til að ná því marki þarf að huga að mörgu. Byggja þarf skóla í takt við fjölgun barna í borginni og mæta auknum kröfum foreldra um lengri dvalartíma. Fjölga þarf rýmum fyrir yngri börn í leikskólum og tryggja að fagmenntuðu starfsfólki fjölgi. Þá þarf að setja skýr markmið og fylgja eftir kröfum um gæði í skólastarfi. Samfara þessari uppbyggingu er það markmið leikskólaráðs að tryggja foreldrum aðgengi að öðrum ummönnunarúrræðum, s.s. dagforeldrum.

Borgarbörn er aðgerðaráætlun leikskólaráðs endurspeglar skref Reykjavíkurborgar á næstu 4 árum til að ná því markmiði borgarstjórnar að tryggja foreldrum val um dagvistarþjónustu frá því að fæðingarorlofi lýkur. Borgarbörn hefur það markmið að fjölga leikskólaplássum og kynna ný og ólík úrræði fyrir börn í Reykjavík með það að markmiði að bæta þjónustu við foreldra og börn.
Í áætluninni kemur fram að á næstu þremur árum verði leikskólaplássum fjölgað í nýjum leikskólum og nýjum deildum bætt við rótgróna leikskóla. Einnig verða í henni tímasetningar á nýjungum eins og nýjum úrræðum í þjónustu dagforeldra, hærri niðurgreiðslur til dagforeldra, þjónustutrygging, ungbarnaskólar, jöfnun niðurgreiðslna til sjálfstætt rekinna leikskóla, rafræn innritun í leikskóla samhliða nýjum upplýsingavef um dagvistunarmöguleika.

Þjónustutrygging er tímabundið úrræði fyrir foreldra sem hafa fullnýtt fæðingarorlof sitt, sótt um í leikskóla fyrir barn sitt og eru á biðlista eftir plássi. Þjónustutrygging stendur foreldrum til boða frá 1. september á þessu ári og er jafn há greiðsla og Reykjavíkurborg greiðir með barni sem er í vistun hjá dagforeldri eða 35.000kr. en fellur niður þegar barn fær boð um vistun í leikskóla eða gefst kostur á dagforeldri að ósk foreldra.

Foreldrar sem þiggja þjónustutryggingu en ráðstafa henni ekki til þriðja aðila skipta á milli sín greiðslutímabilinu á sambærilegan hátt og lög um fæðingarorlof gera ráð fyrir. Þjónustutrygging byggir þannig á hugmyndum um réttlæti og jafnrétti, réttlæti á þann hátt að yfirvöldum ber skylda til að tryggja jafnræði borgaranna og jafnrétti kynja á þann hátt að metnaðarfullar og virtar reglur um fæðingarorlof foreldra eru nýttar til að tryggja barni samvistir við báða foreldra sína og gera þeim kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.

Borgarbörn er samheiti yfir fjölda verkefna sem Reykjavíkurborg vinnur nú að til að tryggja foreldrum vistun fyrir börn sín frá því að fæðingarorlofi lýkur árið 2012. Lokamarkmiðið er að frá lokum fæðingarorlofs bjóðist ólík þjónusta til að tryggja foreldrum val í samræmi við þarfir sínar og barna sinna.

Hér er hægt að sjá áætlunina sjálfa og fleiri upplýsingar.