Pistlar
28.08 2008 01:20
Frábær skipulagning hátíða
Ég get ekki orða bundist yfir hátíðarbúningi þeim sem Reykjavíkurborg skartaði á Menningarnótt og í gær við móttöku landsliðsins í handbolta. Þessu til viðbótar vil ég nefna Náttúrutónleika Bjarkar fyrr í sumar.
Menningarnótt sannaði sig í ár, rigning hindraði ekkert. Allir eru sammála um að það var eitthvað fyrir alla og viðburðir sem voru innan dyra nutu sín sérstaklega vel í ár. Frábærir viðburðir um alla borg og öryggismál í góðum farvegi. Nýjungar, eins og þemað Torg í borg sannaði að ný verkefni urðu til í samstarfi listamanna. Miðbæjarskólinn var stútfullur af fólki að skoða skólastarf fyrir 100 árum. Frábær menningarnótt situr enn í huga borgarbúa.
Gærdagurinn var líka frábær. Með samstilltu átaki menntamálaráðuneytis, menningar- og ferðamálasviðs borgarinnar, framkvæmdasviðs borgarinnar, ÍTR, lögreglunnar og fjölmiðla var hægt að taka á móti silfurdrengjunum á mjög eftirminnilegan hátt.
Ég vil þakka fyrir mig. Það er magnað að hægt sé að búa til svona hátíð með næstum engum fyrirvara og sýnir vel hversu öflugt og metnaðarfullt fólk starfar að því að búa til minningar fyrir okkur öll.
Nýjustu skrif
02.02 2012 18:37
Vöggugjöf
19.01 2012 08:41
Spegluð kennslustund
18.01 2012 22:44
Fróðleikur um speglun
22.12 2011 23:05
Meira um leikskóla
15.12 2011 23:23