Pistlar
28.07 2008 01:16
Langömmuafmæli
Foreldrar hennar voru hjónin Jakob Björnsson trésmiður, f. 14. ágúst 1864, drukknaði 26. maí 1910, og Guðríður Pétursdóttir, f. 14. júní 1863, d. 12. nóvember 1923. Þau hjónin bjuggu í Vík í Mýrdal og eignuðust alls tíu börn sem öll eru látin. Elstur var Björn, f. 1893, sjómaður í Vestmannaeyjum, Eyjólfur Þórarinn, f. 1895, dó í bernsku, Sæmundur, f. 1896, drukknaði 1920, Pétur bóndi á Rauðhálsi í Mýrdal, f. 1897, Eyjólfur Þórarinn, smiður í Reykjavík, f. 1899, Kári, f. 1901, drukknaði ásamt Sæmundi bróður sínum 1920, Magnús Þorbergur, smiður í Vestmannaeyjum, f. 1903, Halldóra, f. 1905, dó í frumbernsku, og Ólöf Guðfinna, saumakona í Reykjavík, f. 1908, d. 1995, Jakobína Guðríður, f. 1910, d. 1997.
Nýjustu skrif
02.02 2012 18:37
Vöggugjöf
19.01 2012 08:41
Spegluð kennslustund
18.01 2012 22:44
Fróðleikur um speglun
22.12 2011 23:05
Meira um leikskóla
15.12 2011 23:23