Pistlar
02.07 2008 01:17
Nú skiptir OR máli
Í Morgunblaðinu í dag er ágæt úttekt á stöðu Reykjavíkurborgar í núverandi efnahagsástandi. Nú þegar kreppir að og mögulega þarf að grípa til aðgerða til að borgarsjóður standi af sér niðursveiflu kemur í ljós að Orkuveitan er ekki eyland. Öll lán OR eru í ábyrgð hjá borgarsjóði, þ.e. skattgreiðendum í Reykjavík (og að litlu leyti annara sveitarfélaga). Þegar á fyrsta ársfjórðingi þessa árs var tap OR 17 milljarðar. Tölur sem þessar munu sjást á meðan að krónan veikist eins og undanfarna mánuði.
Það er mikilvægt að minna á að REI eins og það var hugsað í lok síðasta árs hefði krafist mikilla fjárskuldbindinga Orkuveitunnar í verkefnum á erlendri grundu. OR hefði þannig verið búin að binda enn hærri upphæðir í áhættusöm verkefni um leið og þeir væru að takast á við núverandi ástand í efnahagsumhverfinu. Óhætt er að segja að fyrirtækið hefði staðið afar illa og hefði þurft að ganga mjög á eigið fé félagsins sem er að mínu mati of lágt nú þegar.
Orkuveitan er mikilvæg fyrir okkur. Á uppgangstímum eins og sl. 8 ár höfum við séð ótrúlegustu verkefni verða að veruleika í gegnum félagið en þegar kreppir að skiptir fyrirtækið okkur enn meira máli. Ef skuldir félagsins eru of háar hefur það áhrif á lánshæfi Reykjavíkurborgar. Lánshæfi Reykjavíkurborgar er mjög gott núna en ef eigið fé Orkuveitu lækkar mikið til viðbótar er hætta á að það smitist yfir á lánakjör borgarsjóðs.
Nýjustu skrif
02.02 2012 18:37
Vöggugjöf
19.01 2012 08:41
Spegluð kennslustund
18.01 2012 22:44
Fróðleikur um speglun
22.12 2011 23:05
Meira um leikskóla
15.12 2011 23:23