Pistlar
21.10 2008 01:27
Ókeypis??
Friðjón skrifar mjög áhugaverða færslu í hvað skattfé okkar fer á Eyjunni. Þetta eru mikilvægar upplýsingar sem ættu að vera að jafnaði aðgengilegar til að skattgreiðendur séu meðvitaðari um hvað skatturinn þeirra fer í. Rannsóknir erlendis sýna að þegar fólk er spurt í hvað það heldur að skattfé þeirra fari í þá hafa þeir sem svara óskýra hugmynd bæði um verkefnin og stærðirnar í útgjöldum ríkis og sveitarfélaga.
Bandarískur almenningur á gott orð yfir fjármunina sem þeir greiða til ríkisins. Þeir nota orðið taxdollars. Orðið yrði staðfært og þýtt sem skattkrónur upp á íslensku. Skattkrónuhugtakið er mjög þekkt hjá almenningi í Bandaríkjunum og fólk þar er ágætlega meðvitað um skattprósentur og ábyrgð stjórnvalda á þessu fé. Þar er líka hefð fyrir því í sumum fylkjum að kjósa sérstaklega um hærri skatthlutföll, tímabundið og ótímabundið vegna ákveðinna verkefna.
Ég nefni þetta hér því á góðæristímanum sem nú er lokið með miklum hvelli var ótrúlegasta fólk farið að tala um ókeypis eða gjaldfrjálsa þjónustu hins opinbera. Sjálfstæðismenn töluðu alltaf gegn þessu og sögðu ekkert vera ókeypis. Skattgreiðendur fengju jú alltaf reikninginn.
Og það er komið á daginn. Þegar harðnar á dalnum og skatttekjur lækka eru hugmyndir um ókeypis þjónustu mjög langsóttar og óvinsælar. Þegar skatttekjur lækka hratt eins og nú til ríkis og sveitarfélaga lendum við í mikilli klemmu, því lág gjöld fyrir þjónustu og skatttekjur ná ekki að dekka raunverulegan kostnað við þjónustuna.
Borgarstjórn öll er sammála um að verja að svo stöddu alla grunnþjónustu og öll störf. Vonandi nær þjóðarskútan hratt jafnvægi og við haldið þessu markmiði til streitu. En það verður erfitt.
Nýjustu skrif
02.02 2012 18:37
Vöggugjöf
19.01 2012 08:41
Spegluð kennslustund
18.01 2012 22:44
Fróðleikur um speglun
22.12 2011 23:05
Meira um leikskóla
15.12 2011 23:23