Pistlar
18.09 2008 01:24
Rafmagn, batterí, vistakstur og sólarflug
Ég fór bjartsýn á fund af ráðstefnunni „Driving Sustainability“ eftir að hafa hlustað á nokkra fyrirlesara sem eru fremstir á sínu sviði í að hanna og búa til umhverfi fyrir ólík farartæki sem öll eiga það sameiginlegt að menga ekkert.
Piccard sagði á skemmtilegan hátt frá sólarorkuflugvélinni sem hann er að hanna með góðum stuðningi framsækinna fyrirtækja og benti okkur um leið á að uppfinningamenn fyrir tíma hafi oft uppskorið hlátur viðstaddra og jafnvel dauðdaga fyrir að nefna hugmyndir sem eru alþekktar og notaðar af öllum í dag. Fulltrúi Toyota sagði okkur frá metnaðarfullum plönum félagsins um að framleiða fleiri hybrid bíla, nýja rafmagnsbíla og tryggja að framleiðsluferli bíla sé líka umhverfisvænt. Rétt fyrir hádegi kom svo afar áhugaverður en mjög tæknilegur fyrirlestur um batterí. Það eru jú batteríin sem þurfa að breytast til að bílarnir komist áfram og þarna var sagt frá mögulegu framtíðarbatterí sem er knúið af vírusum.
Spennandi hugmyndir um framtíðina eftir hádegi og á morgun líka 
Nýjustu skrif
02.02 2012 18:37
Vöggugjöf
19.01 2012 08:41
Spegluð kennslustund
18.01 2012 22:44
Fróðleikur um speglun
22.12 2011 23:05
Meira um leikskóla
15.12 2011 23:23