Pistlar

28.04 2008 01:03

Út um allan bæ

Það er alltaf ánægjulegt að sjá lítil verkefni fara í framkvæmd.



Fyrir réttu ári (já þessir litlu hlutir taka tíma!) kom fram hugmynd frá foreldrafélagi Foldaborgar í Grafarvogi um að Leikskólasvið léti leikskóla borgarinnar í té strætókort til að auka möguleika starfsfólks og barna að fara í vettvangsferðir. Auðvitað eru leikskólabörn að ferðast frítt í strætó en það er oftar en ekki þannig á góðum heimilum og góðum leikskólum að ekki er til aur í strætó eða miðar fyrir kennara og starfsfólk leikskóla sem að sjálfsögðu fylgja þeim hvert fótspor.



Á þessum tíma stóð svo vel á að ég sat í stjórn Strætó og stýrði leikskólaráði og ég lét vaða með tillöguna á báðum stöðum. Úr varð þetta fína strætókort, skreytt með myndum eftir börn á Arnarborg, sem Strætó bs. hefur nú afhent öllum leikskólum á höfuðborgarsvæðinu.



Ég er viss um að þessi litla lausn getur haft margföldunaráhrif, haft þau áhrif að leikskólarnir fara í styttri og lengri ferðir með vagninum með mjög litlum fyrirvara og á sama hátt kennt okkar yngstu að nota vagninn í hverfinu sínu og lært á þessa leið samgangna til framtíðar.